Heilsa

Ummerki fatanna

sigga dögg skrifar
Justin Bartels ljósmyndari og sýningin hans, Impressions
Justin Bartels ljósmyndari og sýningin hans, Impressions Vísir/Skjáskot
Fatnaður getur þrengt að líkamanum en gengur það í eftir tískubylgjum hvort nýþröngt eða vel vítt sé í tísku hverju sinni.

Justin Bartels ljósmyndara langaði að benda á förin, og áhrifin, sem nútíma staðlar um fegurð gera við líkama kvenna. Hugmyndin kviknaði þegar hann var í háskóla og velti líkömum bólfélaga sinna fyrir sér og velti því fyrir sér hversu langt konur gengu til að ganga í augum á mögulegum maka.

Justin þótti merkilegt að óþægilegur fatnaður væri samþykktur og mikilvægur í makaleitinni eða fyrir sjálfstraust viðkomandi.

Hann velti fyrir sér markaðsetningu flíkanna og hversu langt er ætlast til að konur gangi til að láta sér líða vel. Myndirnar eru ljóðrænar og segja hver áhugaverða sögu.

Vísir/Skjáskot
Brjósthaldarinn er oft það fyrsta sem fær að fljúga þegar kona kemur heim eftir langan vinnudag og mætti jafnvel kanna hvort konur ættu að hafa brjóstahaldaralausan dag.

Vísir/Skjáskot
Óþægilegir og of þröngir skór geta ekki verið hvetjandi fyrir líkamann til að hreyfa sig eða fyrir húðina og blóðkerfið

Vísir/Skjáskot
G-strengir skerast margir inn í holdið, hér geta rúmgóðar bómullar nærbrækur verið svarið








×