Heilsa

Knúsaðu mig

sigga dögg skrifar
Gott knús getur styrkt sambandið
Gott knús getur styrkt sambandið Vísir/Getty
Nánd í sambandi kemur ekki eingöngu frá kynlífi heldur einnig frá daglegri snertingu.

Kynlíf, gæði þess og tíðni, er misjöfn hjá pörum en fólki hættir við að minnka alla líkamlega snertingu þegar minna er um kynlíf (minna en því pari þykir ásættanlegt).

Sumir minnka snertingu því þeir telja að lesið verði rangt í hana, annað hvort að verið sé að falast eftir kynlífi eða með snertingu sé boðið upp á kynlíf. Þegar snerting minnkar innan sambands þá getur nándin gert það líka og það hefur svo áhrif á samskiptin.

Nýleg rannsókn benti á mikilvægi þess fyrir pör að veita hvort öðru nánd með innilegri snertingu sem þó þarf ekki að vera kynferðisleg.

Pör sem knúsuðust reglulega voru ánægðari í sambandi, áttu betri samskipti og rifust sjaldnar.

Knús við fólk sem þér þykir vænt um getur haft jákvæð áhrif fyrir andlegan líðan. Áhrifum þess hefur verið líkt við hlátur fyrir líkamann. 

Svo þitt fyrsta og seinasta verk á hverjum degi ætti að knúsa þá sem þú elskar.


Tengdar fréttir

Listin að krydda kynlífið

Hvað felst í því að vilja bæta kynlífið sitt? Eru það kynlífsráð þar sem kaupa skal græju eða er það ný stelling eða ný staðsetning?








×