Bílar

Fljúgandi bílar í Fast & Furious 7

Finnur Thorlacius skrifar
Við framleiðslu Fast & Furious myndanna er alltaf reynt að toppa sig og víst er það verður gert í næstu myndinni, þeirri sjöundu.

Ekkert minna en svo að bílabrjálæðingarnir sem skartað er í myndunum er hent út úr flugvél í bílum sínum og auðvitað lendar þeir í þeim, með hjálp fallhlífa, heilu og höldnu.

Bílarnir falla út úr C-130 herflugvél í 12.500 feta hæð og hvort allt það atriði er tölvutilbúningur eða raunverulega gert, þá lítur þetta afar raunverulega út í meðfylgjandi myndskeiði.

Framleiðendur myndarinnar segja að þetta hafi raunverulega verið framkvæmt og fallhlifarnar hafi opnast í 5.000 fetum og það hafi gefið þeim nokkrar sekúndur til að mynda fall þeirra á afar áhrifamikinn hátt. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×