Heilsa

Helltu kókinu í klósettið

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Coke-Cola, eða kók á íslensku, er umdeilt í ljósi þess að það er óhollt fyrir líkamann.

Ef þú átt kók inni í ísskáp þá þarftu ekki að farga því heldur getur þú notað það við heimilisþrifin.

Kók á að geta

- þrifið burt ryð,

- þrifið erfiða bletti á næstum hvaða yfirborði sem er,

- þrifið bletti eftir olíur,

- náð fitublettum og blettum eftir blóð úr teppum og fatnaði,

- náð tyggjói úr hári, fatnaði eða af skóm,

- náð pennastriki úr teppum,

- leyst upp brenndar matarleifar í pottum og pönnum,

- má nota til að fægja silfur og kopar,  

- er kjörið fyrir flísarnar inni í eldhúsi eða á baðherberginu,

- náð blettum úr postulíni,

- hreinsað klink,

- náð málingu af málmyfirborði (ef rökum klút með kók í er skilið eftir þar í nokkra daga),

- þrifið klósettskálina 

- losna fitu af framrúðunni á bílnum og jafnvel leyst upp frost á rúðinni

Kók gæti verið alhliða hreinsiefni heimilisins.

Nú ef þér leiðist og þú nennir ekki að þrífa þá má gera áhugaverðar tilraunir eins og að setja Mentos nammi ofan í kók, passaðu bara að gera þetta úti.

Hér má sjá hvað gerist ef þú setur egg ofan í kók og geymir það þannig í eitt ár.








×