Lífið

Hárkolla Russell Crowe kostaði milljón

Ragna Fossberg er einn farsælasti gervasmiður landsins og margverðlaunuð fyrir störf sín. Hún sá um öll gervi Spaugstofunnar í nær tvo áratugi, og hefur þar fyrir utan farðað fyrir fjölda áramótaskaupa, sjónvarpsþátta og hátt í þrjátíu bíómyndir.

Hún kynntist hárkollugerð þegar hún var í námi í danmörku árið 1976 og hefur gert þær ófáar síðan. Og þessar kollur eiga lítið skylt við akrýldótið sem maður verslar á slikk fyrir öskudaginn. Það tekur auðveldlega viku að búa til eina slíka, og þær geta kostað skildinginn. Fáar eru þó líklega jafn íburðarmiklar og kolla sem Russell Crowe bar í myndinni Noah, en hún var gerð úr hans eigin hári. Ragna vann við myndina og þurfti að gera við þessa undrasmíð, sem kostaði litla milljón.

,,Og það þykir nú ansi gott fyrir eina kollu. Þannig að ég sat með hana í klofinu og þorði ekki einu sinni að leggja hana frá mér í bílsætið þannig að hún myndi ekki krumpast. Nógu dýrt var þetta,” segir Ragna hlæjandi.

Verðmiðinn verður skiljanlegri þegar Ragna útskýrir hvernig slíkar kollur eru unnar. Hárin eru hnýtt í grunninn fjögur til sex í einu yfir stærstan hluta kollunnar, en eitt og eitt í nær andlitinu.

,,En þessi kolla er öll búin til með einu og einu hári, frá hnakka að enni. Ég hef aldrei séð svona flotta kollu,” segir Ragna, sem giskar á að þetta hafi tekið heillangan tíma. ,,Mánuður, tveir, enda kostar stykkið milljón."

Ragna verður í viðtali í Fókus á Stöð 2 á laugardagskvöld, en brot úr þættinum má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir

Með þungvopnuðum mótorhjólamönnum og berbrjósta konum í Kansas

Tökumaðurinn Bergsteinn Björgúlsson vinnur nú að heimildamynd hans og ljósmyndarans Spessa Hallbjörnssonar um mótorhjólamenningu í Bandaríkjunum. Þeir fóru til Kansas í tökur en Besti eins og hann er jafnan kallaður segir það hafa verið eins og að fara aftur í tímann.

Fangaklefi á barnaheimili vakti grunsemdir

Upphaf Breiðuvíkurmálsins má rekja til þess þegar kvikmyndatökumaðurinn Bergsteinn Björgúlfsson frétti frá vini sínum af tilvist steypts klefa í kjallara hótelsins á Breiðavík, sem eitt sinn var vistheimili fyrir börn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.