Lífið

Facebook lokaði á íslenskan #FreeTheNipple viðburð

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá vinstri: Vinkonurnar Guðbjörg Ríkey Hauksdóttir, Hanna María Geirdal og Karen Björk.
Frá vinstri: Vinkonurnar Guðbjörg Ríkey Hauksdóttir, Hanna María Geirdal og Karen Björk. Vísir
Karen Björk Eyþórsdóttir ákvað í gærkvöldi ásamt vinkonum sínum að efna til #FreeTheNipple viðburðar fyrir alla þjóðina á Facebook í gær. Ekki leyst forsvarsmönnum samfélagsmiðilsins betur á þær áætlanir en svo að þeir sendu viðvörun og eyddu viðburðinum. Yfir þúsund manns voru búnir að melda sig þar sem sýna átti samstöðu með baráttu kvenna fyrir því að sýna brjóst sín líkt og karlmenn fá athugasemdalaust.

„Það að viðburðurinn var tekinn út sýnir hversu brýnt þetta málefni er. Myndin sem ég notaði með viðburðinum var af stelpu á strönd á brjóstunum. Á myndina var skrifað FREE THE NIPPLE,“ útskýrir Karen Björk í samtali við Vísi.

Vill festa daginn í dagatali komandi kynslóða

Í skilaboðum Facebook til Karenar kemur fram að í viðburðinum sem hún stofnaði hafi verið að finna efni sem brýtur gegn skilyrðum fyrir notkun á Facebook. Láti hún ekki af því verði aðgangi hennar lokað.

Karen Björk, sem starfar í þjónustuveri 365 þar sem hún svarar fyrirspurnum fólks á brjóstunum í tilefni dagsins, varð vör við að stofnað hafði verið til viðburða víða í gærkvöldi. Til dæmis í Háskóla Íslands, MR, MH og Verzló. Hún sjálf er ekki í skóla og vildi því stofna viðburð sem næði til allra sem hefðu áhuga á málstaðnum.

„Ég vildi sameina alla minni viðburðina sem eru nú þegar myndaðir. Þetta er málefni sem hefur angrað mig lengi og á þessari stundu gæti ég ekki verið stoltari af mínu þjóðerni. Vonandi verður þessi dagur festur í dagatali komandi kynslóða!“

Tengist umræðunni um Slut Shaming

„Það að þessi pínulitli hluti af líkömum kvenna skuli særa blygðunarkennd margra finnst mér svo furðurlegt,“ segir Karen Björk. Enn furðulegra er hve margir virðist hafa óbeit á brjóstagjöf á almannafæri vitandi að um sé að ræða það allra nauðsynlegasta í vexti hvers og eins.

Karen segir #FreeTheNipple tengjast inn í umræðuna um Slut Shaming þar sem konur eru dæmdar vegna klæðaburðar og ofbeldi gegn þeim þannig réttlætt.

„Virkilega margir aðdáunarverðir einstaklingar svo sem skipuleggendur Druslugöngunnar og forsvarsmenn samtakanna Tabú hafa svo keyrt þessar pælingar inn í huga landsmanna og fyrir þeim tek ég ofan alla mína hatta. Sömuleiðis snillingunum úr Verzlunarskóla Íslands sem hófu umræðuna og öllum sem ætla að taka þátt,“ segir Karen.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.