Heilsa

Hversu mikið vatn á maður að drekka?

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Endalaust er baunað á fólk um vatnsdrykkju en er hægt að drekka of mikið og getur verið að allt fólk þurfi að drekka jafnmikið?

Nokkrir punktar um vatnsdrykkju:

- Vatn tapast við öndun, við svita og við þvag og hægðir

- Meðalmanneskja er með um 40 lítra af vatni í líkamanum

- Ef svengd gerir vart við sig eða skyndilega löngun í súkkulaði, drekktu þá vatn

- Kaffi hefur vatnslosandi áhrif svo það er gott að drekka vatn á milli kaffibolla

- Lágmarksvatnsþörf er hálfur líter á dag, til að losna við úrgangsefni úr líkamanum

- Þvag getur verið allt að líter af vökva á dag

- Meðalvatnsþörf er um tveir lítrar á dag, en það á við allan vökva, einnig þann sem er í mat- Ef þú svitnar mikið (vegna áreynslu eða hita) þá eykst vatnsþörfin en þú tapar líka salti svo gott getur verið að fá sér íþróttadrykk eða safa

- Natríum í líkamanum bindir vatn og skapar bjúg, ef þú ert með bjúg, auktu við vatnsdrykkjuna til að losna við natríumið og þar með bjúginn

- Vatn þarf ekki að þamba heldur er gott að fá sér reglulega sopa yfir daginn

- Ef þvagið er mjög gult þá getur það verið merki um vökvaskort, þvag á helst að vera frekar litlaust (nema ef tókst B-vítamín því það litar þvagið heiðgult)

- Ofdrykkja á hreinu vatni getur verið varasöm og jafnvel hættuleg og þá er verið að tala um tíu til tuttugu lítra á dag

- Gamalt fólk drekkur oft minna vatn en aðrir og stuðlar það að slappleika og hægðartregðu

- Ef þig þyrstir, fáðu þér sopa!








×