Lífið

Biggi lögga á Snapchat: Ætlar að veita Íslendingum innsýn í lögreglustarfið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bigg verður án efa flottur á Snapchat.
Bigg verður án efa flottur á Snapchat.
Birgir Örn Guðjónsson, sem betur er þekktur sem Biggi lögga, er þjóðkunnur fyrir greinaskrif sín og svo það að bregða á leik á internetinu. Nú er Biggi lögga kominn á samfélagsmiðilinn Snapchat.

Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-reikningi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

„Gleðilegan mánudag. Ég vildi bara láta ykkur vita að ég er kominn með Snapchat reikning- „biggilogga“. Ég reyni að koma þar með einhver góð ráð og ábendingar og gef ykkur smá innsýn í lögreglustarfið.Njótið svo vikunnar elskurnar mínar og farið varlega,“ segir á Facebook lögreglunnar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×