Lífið

Föstum skotum skotið í átt að Ísrael í nýju lagi

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Rappararnir tíu sem taka þátt í laginu.
Rappararnir tíu sem taka þátt í laginu.
„Ég gerði upprunalega lagið með gæjum sem heita Dusk og þeir gera líka þetta nýja remix,“ segir Erpur Eyvindarson einnig þekktur sem BlazRoca. „Þeir eru alltaf aktívir og hafa meðal annars verið að gera stóran hluta af nýju plötunni hans Páls Óskars.“

Nýja lagið er remix af nýjustu smáskífu Erps, Warsaw Gettó Gaza, og með honum er einvala lið rappara sem flestir hafa verið virkir innan senunnar með reglulegu millibili. Í myndbandinu má einnig finna tengla á síður allra listamannanna sem taka þátt hvort sem það er á Facebook, SoundCloud eða öðrum miðli.

„Þarna eru til að mynda Jakob Reynir sem var áður í Kritikal Mass með meðal annars Ágústu Evu og Úlfi Kolka. Úlfur tekur líka þátt í laginu. Vivid Brain, var með okkur á fyrstu Rottweiler plötunni og hefur minnt reglulega á sig síðan.“

Alexander Jarl er Vesturbæingur ættaður frá Palestínu. Yfirleitt hefur það efni sem hann hefur sent frá sér verið í léttari dúr en hér er hann útúrljónaður. Byrkir B, úr Forgotten Lores, og Mælginn eiga einnig sín vers í laginu.

Þá á eftir að telja upp Sesar A en hans partur er vísun í framlag Ísrael til Eurovision 1987, Hubba Hulle, sem sannarlega hefur grafið sig fast í miðtaugakerfi landsmanna. Einnig má heyra í Bórilla sem rappaði áður með Dáðadrengjum og síðastan, en alls ekki sístan, ber að telja upp Bobba vandræðagemsa sem er búsettur í Danmörku. Hann er hálfgerð neðanjarðargoðsögn sem hefur heyrst lítið frá í talsverðan tíma.

„Það er gaman að vinna með þessu fólki. Það eru margir að gera góða tónlist í undirgrundinni sem fréttist minna af í meginstraumnum. Það eru nokkur nöfn sem eru í öllum miðlum en ef kafað er aðeins dýpra má finna helling sem eru að gera svo mikið líka. Íslenskt hip hop er Kyrrahaf af hæfileikum og þá þarf oft að kafa dýpra til að finna risakolkrabbana.“

Næsta smáskífa frá Erpi er væntanleg um næstu mánaðarmót. „Hún verður kraftmikil en aðeins rólegri og persónulegri. Maður þarf að sinna því líka og ég veit að Warsaw Gettó Gaza hefur í bili slegið á hungur harða kjarnans í mínum aðdáendahópi,“ segir Erpur að lokum.


Tengdar fréttir

„Okey þetta er kúbanskt fu..... freestyle“

Tónlistarmennirnir Tómas R. Einarsson og Erpur Eyvindarson sem þekkja báðir vel til Kúbu eru ánægðir með fréttir af þíðu í samskipum Bandaríkjanna og Kúbu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×