Lífið

Félagi Of Monsters and Men hrekkti starfsmann veitingahúss

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Hér má sjá servíettuna auk þeirra staða sem OMAM spila á á næstu mánuðum.
Hér má sjá servíettuna auk þeirra staða sem OMAM spila á á næstu mánuðum. vísir/getty
Hljómsveitin Of Monsters and Men er nú á tónleikaferð um heiminn en hún hófst á mánudaginn í Toronto. Í gær lék hljómsveitin í Hammerstein Ballroom í New York og eftir þá fóru meðlimir út að borða. Sú heimsókn skildi notanda Reddit eftir sem eitt stórt spurningamerki.

Hljómsveitarmeðlimir ákváðu að sprella örlítið því þeir skildu eftir servíettu sem innihélt rúnir og skilaboðin „Ef þið reynduð að þýða rúnirnar þá eruð þið fífl.“ Sumar af rúnunum finnast í gamla Fuþark stafrófinu en hluti þeirra er algert bull.

Notandinn playuglyforkevin segir að hann hafi ekki haft tíma til að fá mynd af sér með krökkunum en þau hafi skilið servíettuna eftir. Hann hrósar þeim einnig fyrir almennilegheit.

Uppfært: Vísi hefur borist ábending þess efnis að enginn hljómsveitarmeðlima skrifaði á servíettuna heldur vinur sveitarinnar sem var staddur með þeim á veitingahúsinu. Það leiðréttist hér með.

Á næstu mánuðum eru yfir fimmtíu tónleikar á döfinni hjá Of Monsters and Men. Lista yfir þá má sjá hér fyrir neðan.

Næstu tónleikar sveitarinnar.

Tengdar fréttir

Árni & Kinsky leikstýra myndbandinu

Mikil leynd og viðhöfn fylgir nýju myndbandi Of Monsters and Men. Starfsmenn fengu ekki að vita hvernig sviðsmyndin átti að birtast í myndbandinu. Kynstrum af möl var mokað inn í myndver Saga Film við Laugaveg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.