Óstöðvandi velgengni GTA V

Á fyrstu þremur dögunum eftir að leikurinn kom fyrst út í nóvember 2013 voru tekjur af sölu hans einn milljarður dala, um 130 milljarðar króna. Sölutekjur fyrirtækisins fyrir ársfjórðunginn voru 427,7 milljónir dala.
Framleiðendur Grand Theft Auto V, Take Two Interactive Software sem eiga Rockstar Games, fóru fram úr spám sérfræðinga þegar kemur að ársfjórðungsuppgjöri sem fyrirtækið birti í gær. Þetta er níundi ársfjórðungurinn í röð sem Take Two fer fram úr spám sérfræðinga. Verð hlutabréfa fyrirtækisins hækkaði um átta prósent í gær, en frá því að GTA V kom fyrst út hefur hækkunin verið 40 prósent.
Samkvæmt Reuters fréttaveitunni vekur athygli að stafræn sala á leikjum þeirra hefur aukist gífurlega. Á fyrsta fjórðungi þessa árs fór 48 prósent sölunnar fram á internetinu, sem er hækkun um fimm prósent.
Auk þess að hafa selt gífurlegan fjölda eintaka af GTA V og NBA 2K15 leikjunum, hefur netspilun GTA skilað miklum hagnaði. Þar geta spilarar eytt raunverulegum peningum fyrir peninga inn í leiknum og hefur það skilað fyrirtækinu miklum tekjum.
GTA V er einn af dýrustu leikjum sem hafa verið framleiddir og kostaði framleiðsla hans um 265 milljónir dala. Ljóst er að Take Two hefur nú grætt verulega á framleiðslu leiksins og mun líklegast hagnast enn fremur.
Tengdar fréttir

Fyrstu persónu sjónarhorn í GTA 5 - Myndband
Leikurinn mun keyra á 1080p/30fps í PS4 og Xbox One. PC útgáfa leiksins mun styðja 4k upplausn.

Óreiða Los Santos aldrei tilkomumeiri eftir hróðuga endurútgáfu á PC
Grand Theft Auto V hefur verið gefinn út þrisvar sinnum og hann verður betri með hverri útgáfunni.

Gamalt fólk spilar GTA
Bráðfyndið myndband sem sýnir eldra fólk ganga af göflunum á götum Los Santos.

Gífurlegur munur á GTA V á milli kynslóða
Grand Theft Auto V hefur farið í gegnum miklar breytingar fyrir útgáfu hans á PS4 og Xbox One.

Mörg dæmi um að foreldrar kaupi GTA V fyrir börn sín
Mörg dæmi eru um að börn komi í fylgd foreldra til að tryggja sér eintak af ofbeldisfullum tölvuleik sem nú tröllríður afþreyingar-bransanum. Framkvæmdastjóri Skífunnar segist aldrei hafa séð slíkar vinsældir.

GTA 5 kostaði 32,6 milljarða króna
Tölvuleikir standa nú jafnfætis kvikmyndum, sjónvarpsefni og teiknimyndum í afþreyingariðnaði. Kostnaður við nýjasta Grand Theft Auto leikinn eru svipaður og við dýrustu kvikmyndir heims. Tekjumöguleikar eru aftur sagðir enn meiri. Halað var inn fyrir kostnaði í forsölunni einni.

Grand Theft Auto yfir milljarð dala
Sala á tölvuleiknum Grand Theft Auto 5 hefur slegið öll met. Sölutekjur leiksins hafa nú þegar náð einum milljarði dala og nær þeim áfanga hraðar en nokkur annar tölvuleikur sem framleiddur hefur verið.

GTA 5 er dýrasti leikur allra tíma
"Þetta er engin smá smíði, það eru yfir þrjú hundruð tölvufræðingar búnir að vinna að þessum leik síðustu fimm árin,“ segir Ágúst Guðbjartsson, framkvæmdastjóri Gamestöðvarinnar. Dýrasti leikur allra tíma, Grand Theft Auto 5, kemur formlega út á morgun.

Örtröð í Kringlunni eftir vinsælum tölvuleik
Nokkur hundruð manns bíða í röð fyrir framan verslun Geimstöðvarinnar í Kringlunni. Sala á nýasta Grand Theft Auto 5 leiknum sem hefst í kvöld.

Lindsay Lohan höfðar mál gegn framleiðendum GTA V
Hún segir karakter úr leiknum vera tilvísun í sig.