Lífið

Eurovision sérfræðingar telja að María fari áfram með naumindum

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Ísraelar og Svíar ættu að fara örugglega áfram en Ísland er á mörkunum.
Ísraelar og Svíar ættu að fara örugglega áfram en Ísland er á mörkunum.
Eurovision blaðamenn heimsins gefa íslenska atriðinu misjafna dóma eftir fyrstu æfinguna sem fram fór í gær. Einhverjir telja að María munu fljúga áfram og að atriðið gæti endað í efstu tíu sætunum meðan aðrir búast við því að lagið muni ströggla. Allir eru þó sammála um að atriðið eigi mikið inni.

Blaðamenn á staðnum gáfu lögunum síðari undanriðlinum stig eftir því hvaða lönd þeir teldu að færu áfram. Besta atriðið fékk fimm stig, það næst besta þrjú og þriðja besta hlaut eitt stig. Þegar upp var staðið flugu Ísrael og Svíþjóð örugglega áfram með 55 stig en Lettland og Azerbaijan ættu einnig að vera örugg áfram. Ísland er lægst þeirra landa sem kemst áfram en við fáum tíu stig frá sérfræðingunum.

Næsta æfing Íslands fer fram á morgun klukkan 16.30.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×