Lífið

Sænsku Eurovision-sérfræðingarnir spá Unbroken góðu gengi: María fær Eric Saade til að svitna

Atli Ísleifsson skrifar
Eric Saade keppti fyrir hönd Svía árið 2011 með lagið Popular.
Eric Saade keppti fyrir hönd Svía árið 2011 með lagið Popular. Vísir/AFP/Andri
Sænsku Eurovision-sérfræðingarnir í upphitunarþætti sænska ríkissjónvarpsins spá Maríu Ólafs góðu gengi í keppninni í Vínarborg í næstu viku.

Eric Saade, sem söng lagið Popular fyrir hönd Svía í lokakeppninni árið 2011, hélt vart vatni yfir Maríu og spáir því að hún geti jafnvel unnið alla keppnina.

Fjórði og síðasti þáttur Inför Eurovision Song Contest, sem samsvarar til þáttarins Alla leið á RÚV, var á dagskrá sænska ríkissjónvarpsins í kvöld. Sérfræðingarnir hlýddu á framlög tíu landa og gáfu þeim einkunn á bilinu eitt til tíu.

Gæti unnið keppnina

Eric Saade átti erfitt með sig í sjónvarpsstúdíóinu eftir að þau voru búin að horfa á myndbandið með íslenska laginu.

„Virkilega gott lag. Falleg stelpa sem syngur svakalega vel ef við tökum mark á þessu myndbandi. Hún náði mér algerlega með þessum augum sínum. Ég fór bara að svitna. Ef vel tekst til þá held ég að að þessu muni ganga mjög vel. Ég held að þetta gæti unnið keppnina. Þetta fær tíu stig,“ sagði Saade.

Hinir sérfræðingarnir voru einnig mjög jákvæðir í garð Maríu og lagsins Unbroken.

Minnir á Jóhönnu Guðrúnu

Söngkonan Kristin Amparo, sem átti lagið I See You í sænsku undankeppninni, sagði þetta vera gott lag, góð útsetning og góð laglína. „Þetta er í raun ekki minn smekkur, en í samanburði við annað sem við höfum heyrt þá er þetta frábært.“ Hún gaf laginu átta af tíu mögulegum.

Sjá einnig: Thomas Lundin sannfærður um að Ísland komist áfram

Christer Björkman, framkvæmdastjóri sænsku söngvakeppninnar, segir tilfinninguna í laginu minna á lag Jóhönnu Guðrúnar, Is It True, sem keppti árið 2009 og hafnaði í öðru sæti. „Þetta lag getur alveg blandað sér í baráttuna og eitt af fimm efstu sætunum er alls ekki ómögulegt. Ég gef laginu átta stig.“

Viðlag sem hljómar enn í kollinum

Þáttastjórnandinn og söngkonan Sarah Dawn Finer sagðist einnig vera hrifin af laginu og sérstaklega að það væri einn þráður sem hélt í gegnum allt lagið. „Maður skilur þetta. Viðlagið er öflugt sem hljómar enn í kollinum. Hún syngur vel. Maður vonar svo innilega að hún syngi svona vel á sviði. Það eru mikið af góðum íslenskum söngkonum. Ég gef laginu átta stig.“

Tess Merkel, söngkona sænsku sveitarinnar Alcazar, sagði lagið vera svolítið eins og mintukaramella sem hún gleypi hratt. „Kannski ekki svo áhugaverð mintukaramella en samt mjög frískandi. Ég held að þessu muni ganga vel og gef því níu stig.“

Í lok þáttarins var farið yfir hvaða lönd sem keppa í síðara undankvöldinu sérfræðingarnir spá því að komist áfram. Þau eru: Svíþjóð (allir sérfræðingarnir gáfu Svíum tíu stig), Kýpur, Ísland, Ísrael, Aserbaídsjan, Slóvenía, Svartfjallaland, Írland, Lettland og Noregur.

Hægt er að horfa á þáttinn hér á vef sænska ríkissjónvarpsins.


Tengdar fréttir

Kjóllinn frumsýndur: María sló í gegn í Kringlunni

María Ólafsdóttir, Eurovision-fari okkar Íslendinga, hélt tónleika í Kringlunni í dag. Þar frumflutti hún tvö ný lög og tók síðan að sjálfsögðu Unbroken, framlag Íslands í keppninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×