Lífið

Lesendur Vísis vilja gefa Ástralíu 12 stig

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Könnunin hefur staðið alla vikuna og var opin öllum sem eru með aðgang á Facebook.
Könnunin hefur staðið alla vikuna og var opin öllum sem eru með aðgang á Facebook. Vísir/EBU
Ástralinn Guy Sebastian mun fá fullt hús stiga frá íslenskum áhorfendum Eurovision í kvöld, samkvæmt könnun sem gerð var á meðal lesenda Vísis. Könnunin hefur staðið alla vikuna og var opin öllum sem eru með aðgang á Facebook.

Mjótt er á mununum, og þá sérstaklega á 10 og 12 stigunum en það eru ítölsku piltarnir í Il Volo sem fá 10 stig. Norski dúettinn Mørland & Debrah Scarlett fær svo 8 stig samkvæmt könnuninni.

Það verður spennandi og gaman að sjá hvort þetta verði raunin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×