Bílar

Renault endurskoðar fjárfestingar í Tyrklandi vegna verkfalla

Finnur Thorlacius skrifar
Starfsfólk verksmiðju Renault í Tyrklandi fyrir utan hana og í verkfalli.
Starfsfólk verksmiðju Renault í Tyrklandi fyrir utan hana og í verkfalli.
Núna stendur yfir verkfall í verksmiðju Renault í Tyrklandi og því engin framleiðsla þar í bili. Þessi verksmiðja er ekki af minni gerðinni en þar voru framleiddir 318.000 bílar í fyrra, það er Clio, Symbol, Megane og Fluence bílar.

Renault hafði uppi áform um að stækka við verksmiðjuna eða byggja fleiri í Tyrklandi en þessar vekfallsaðgerðir hafa slegið á áhuga Renault til þess.

Forsvarsmenn Renault hafa reynt að fá starfsfólk verksmiðjunnar til að halda áfram vinnu sinni og að launakjör þeirra megi ræða og endurskoða þó ekki sé lögð niður vinna.

Eins og er hefur verkstöðvunin ekki orðið til þess að fjölda framleiddra bíla megi ekki vinna upp á næstunni, en það gæti breyst ef verkfallið heldur lengi áfram. Þau er víðar verkföllin en á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×