Lífið

Björgvin, Bjarni og Friðrik Ómar rifja upp frakkana frægu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Björgvin, Bjarni og Friðrik ættu að leggja leiklistina fyrir sig.
Björgvin, Bjarni og Friðrik ættu að leggja leiklistina fyrir sig. Vísir
Að þessu sinni eru það Björgvin Halldórsson, Bjarni Arason og Friðrik Ómar Hjörleifsson sem slá í gegn í nýjasta myndbandi herferðar UN Women, HeForShe – Ólíkir en sammála um kynjajafnrétti.

Heyrst hefur að þeir félagar hafi skiptar skoðanir á títtnefndum frökkum sem dansarar Selmu Björns í All out of luck, klæddust um árið. Hvaðan koma þessir frakkar?

Af tilefni herferðarinnar leikstýrði Dögg Mósesdóttir, sex örmyndböndum  þar sem búið var að para saman ólíka einstaklinga í skemmtilegum aðstæðum.

Herferðin miðar að því að hvetja karlmenn sérstaklega til að taka virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og skrá sig sem mánaðarlega styrktaraðila UN Women. Með mánaðarlegu framlagi til UN Women styður þú við fræðslu í eþíópískum skólum sem miðar að því að stöðva þvinguð hjónabönd, styrkja eina athvarfið í Kambódíu fyrir konur sem lifað hafa af sýruárásir, stuðlar að uppsetningu fleiri ljósastaura við strætóskýli og almenningsklósett í Nýju Delí og draga þannig úr ofbeldi gegn konum og stúlkum svo dæmi séu nefnd.

UN Women er eina stofnunin innan Sameinuðu þjóðanna sem vinnur eingöngu að kynjajafnrétti með því að berjast fyrir mannréttindum kvenna, ýta undir efnahagslega og pólitíska valdeflingu kvenna og draga úr og uppræta ofbeldi gegn konum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×