Undanfarnar vikur hefur Þorbjörg eða Tobba eins og hún er kölluð verið með frábæra örþætti á Heilsuvísi þar sem hún fer yfir það hvernig við getum betrumbætt heilsuna á einfaldan máta. Þessar lakkrískúlur eru í miklu eftirlæti hjá okkur á Heilsuvísi og hvetjum við lesendur til þess að smakka.
Lakkrískúlur Tobbu
400 g sveskjur eða apríkósur
4 dl heslihnetur
2 dl valhnetur eða cashew hnetur
1 dl raw kakó duft
2 tsk Lakkrísrótarduft
1 tsk sjávarsalt
Blandið öllu saman í matvinnsluvél og mótið kúlur. Veltið kúlunum upp úr smá lakkrísdufti og berið fram. Gott er að geyma kúlurnar í kæli í lokuðu íláti.
Sykurlausar lakkrískúlur
Tengdar fréttir
Hollt og sykurlaust gos
Tobba kennir okkur að búa til hollt og sykurlaust gos á mjög einfaldan máta.
Bráðhollur og trefjaríkur morgunverður
Að þessu sinni fjallar Tobba um mikilvægi trefja í mataræðinu. Hún kennir okkur að búa til dásamlegan morgunverð sem fer vel í magann.
Ljómandi með Þorbjörgu - Fita
Ljómandi með Þorbjörgu eru nýir örþættir á Heilsuvísi þar sem fjallað verður um heilsuna og hvernig þú getur bætt hana með einföldum og góðum ráðum úr fórum Þorbjargar eða Tobbu. Í fyrsta þættinum fræðir hún okkur um lífsnauðsynlega fitu og hvernig við getum nýtt hana til þess að halda okkur í góðu formi og til þess að halda uppi jafnri orku allan daginn.