Lífið

Stjörnuspá Siggu Kling - Hrútur: Þú þarft að hvíla þig

Sigga Kling skrifar
Elsku hrútur. Það er hægt að segja það með sanni að þú ert alveg með þetta. Þú ert á svo miklum ógnarhraða að ég veit ekki hvað ég á að segja. Þú þarft að vera alveg viss um að þú vitir hvar hlutlausi gírinn er og læra það að þú þarft að vera svolítið latur til þess að framkvæma allt sem þú vilt.

Þú átt að gefa þér meiri hvíldartíma, stjörnurnar eru að hreinsa orkuna og Mars kemur þar sterkastur inn. Hann veitir þér svo mikla orku að þú gerir þér oft ekki grein fyrir því að þú þarft að hvíla þig. Þetta er uppsafnaður gamall skítur frá veröldinni sem þú þarft að hreinsa út og þú átt eftir að vera svo ánægður með sjálfan þig að þú veist að þú ert á réttum stað og veist að það sem þú hefur verið að hugsa um mun bera árangur.

Fólki á eftir að finnast þú dálítið skemmtileg ráðgáta og það er mikið að pæla í því hvað þú ert að gera. Þessi forvitni stafar af því að inni í orkunni þinni eru svo margir möguleikar sem þú ert að skoða að það lýsir af þér. Þú þarft að taka ákvörðun um eitthvað sem gæti tengst útlöndum eða öðrum skemmtilegum stöðum sem eiga eftir að setja mikinn svip á kraftinn þinn. Í ástinni eru margir sem eru hrifnir af þér og dá þig hreinlega.

Þú, elskan mín, ert svolítill spennufíkill og elskar mikið svo að þeir sem eru svo heppnir að njóta þess að þú elskir þá eiga skemmtilegt líf í vændum. Það er aldrei leiðinlegt að hanga með þér.

Mottó:

Það er ekki vandamálið sem drepur þig heldur afstaðan til þess



Frægir hrútar: Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona, Silvía Lovetank listamaður, Marta Smarta, Björgvin Halldórsson snillingur, Kári Stefánsson vísindamaður, Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti, Hugh Hefner. 



Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×