Kiel komið með níu fingur á bikarinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. júní 2015 20:02 Alfreð Gíslason bætir væntanlega enn einum meistaratitlinum í safnið um næstu helgi. vísir/getty
Kiel fór langt með að tryggja sér þýska meistaratitilinn í handbolta með tveggja marka sigri á Hannover-Burgdorf, 26-28, í næstsíðustu umferð úrvalsdeildarinnar í kvöld. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar, sem töpuðu fyrir Veszprém í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu um helgina, eru nú með 63 stig, tveimur meira en Rhein-Neckar Löwen þegar ein umferð er eftir. Þá er markatala Kiel mun betri, þrátt fyrir 16 marka sigur Löwen í kvöld. Kiel er með 237 mörk í plús en Ljónin frá Mannheim 212. Það þarf því ansi mikið að ganga á ef Kiel verður ekki þýskur meistari fjórða árið í röð. Kiel mætir Lemgo í lokaumferðinni á meðan Löwen sækir Magdeburg heim. Kiel var í vandræðum framan af leik í kvöld og lentu mest sjö mörkum undir í fyrri hálfleik, 12-5. Meistararnir löguðu stöðuna fyrir hlé en staðan í hálfleik var 15-13, Hannover í vil. Kiel seig svo fram úr í seinni hálfleik og vann að lokum tveggja marka sigur, 26-28. Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk fyrir Kiel. Ólafur Guðmundsson gerði þrjú mörk fyrir Hannover og Rúnar Kárason eitt.
Handbolti Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira