Lífið

Secret Solstice: Upphitunartónleikar í Stúdentakjallaranum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kiriyama Family  mun koma fram annað kvöld.
Kiriyama Family mun koma fram annað kvöld.
„Það er frábært að sjá hvað Secret Solstice er að stækka sem tónlistarhátíð og gaman að taka þátt í upphitun fyrir þessa flottu hátíð,” segir Hallfríður Þóra Tryggvadóttir, dagskrárstjóri Stúdentakjallarans en upphitunartónleikar Secret Solstice fara fram á staðnum annað kvöld frá kl. 21 til 01.

„Það verður eitthvað fyrir alla á tónleikunum. Allt frá pönki til raftónlistar. Þetta er tilvalið tækifæri til þess að hita frítt upp fyrir helgina sem og fagna þjóðhátíðardegi að miðnætti,” segir Hallfríður en tónlistarfólkið í Kælunni miklu, Kiriyama Family og KSF spila.

Secret Solstice verður um næstu helgi og fer hátíðin fram í Laugardalnum. Í Stúdentakjallaranum hefst dagskráin klukkan níu og lýkur klukkan eitt eftir miðnætti.



Hér má kynna sér dagskrána nánar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.