Lífið

Margera hótar hefndaraðgerðum í nýju myndbandi teknu á Frakkastíg

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Skjáskot úr myndbandinu.
Skjáskot úr myndbandinu.
Jackass-meðlimurinn og Íslandsvinurinn Bam Margera, sem fékk að kenna á því hjá íslenskum röppurum á Secret Solstice hátíðinni um síðustu helgi, hefur birt nýtt myndband á Facebook-síðu sinni. Af því má ætla að hann sé að upplýsa aðdáendur sína, sem telja á fimmtu milljón, um stöðu mála í kjölfar barsmíðanna sem hann varð fyrir í Laugardalnum.

Eins og sjá má í myndbandinu að neðan les Margera inn á myndbandið en myndefnið er göngutúr hans upp Frakkastíginn í Þingholtunum í Reykjavík. Honum virðist niðri fyrir, rifjar upp látinn félaga sem unni Íslandi og ítrekar fyrirætlanir sínar að opna hjólabrettagarð fyrir íslenska „skeitara“.

„Þeir sátu fyrir mér. Það var ráðist á mig. Sem betur fer var Nicky ekki á svæðinu til að sjá þá berja mig í klessu. Hún hefði endað með glóðurauga og í fangelsi. Hún er orðljót,“ segir Margera og hótar hefndaraðgerðum. Nicky, Nicole Boyd Margera,  er eiginkona Margera sem hann kvæntist á Íslandi árið 2013.

Myndbandinu lýkur svo á drónaupptöku af Hallgrímskirkju sem erfitt er að segja til um hvernig tengist fyrri hluta myndbandsins fyrir utan að gera það á einhvern hátt áhrifameira.

Greinilegt er að Margera hefur nýtt tímann á Íslandi nokkuð til þess að taka upp myndbönd af sjálfum sér en myndbandið af slagsmálunum á Secret Solstice var frá honum komið.

Here's a teaser to get everyone up to date... Earth Rocker... -Bam

Posted by Bam Margera on Thursday, June 25, 2015

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.