Glamour

Förðunarlína frá frönsku fyrirmyndinni

Ritstjórn skrifar
Caroline de Maigret
Caroline de Maigret
Franska fyrirsætan, tónlistarkonan og tískufyrirmyndin Caroline de Maigret hefur hannað förðunarlínu í samstarfi við snyrtivörurisann Lancóme. Línan er væntanleg í verslanir í lok ágúst, og berst vonandi hingað heim líka. 

Caroline er þekkt fyrir sinn afslappaða franska stíl, er eftirlæti götutískuljósmyndara og í uppáhaldi hjá ljósmyndaranum Mario Testino og Karl Lagerfeld. Hún er einn af meðhöfundunum bókarinnar How to Parisian - wherever you are. 



Línan er að sjálfsögðu í frönskum stíl og hönnuð með það í huga að allt á að passa saman. Hún samanstendur af hinum fullkomnu rauðu tónum í naglalökkum, brúnum og ljósum litum í varalitum og mjúkum litum á augum. Einnig er að finna vínrauðan maskara sem að sögn Caroline yngir en hún notar sjálf aldrei svartan maskara bara vínrauðan eða brúnan. 

Þetta er spennandi samstarfsverkefni hjá Lancóme og við hlökkum til að berja afraksturinn augum. 

Flottur still Caroline vekur athygli.


Fylgstu með Glamour á Facebook og Instagram






×