Hið nýja pönk frá Gucci Ritstjórn skrifar 23. júní 2015 20:26 Fjölbreytt lína frá Gucci.
Það er óhætt að segja að það hafi kveðið við ferskan tón hjá Gucci á herrafatatískuvikunni í Mílanó í dag en þar sýndi Alessandro Michele hinn nýji yfirhönnuður tískuhússins, línu sem mundi henta fyrir bæði kynin. Línan var litrík þar sem útvíðar síðar skálmar, stuttar ermar, vel sniðin tvíhneppt jakkaföt og svokallaðar "pussy blouses" eða blússur með slaufum í hálsinn voru áberandi. Munstrin minntu svo á veggfóður sjöunda áratugarins. Flestar fyrirsæturnar voru tilhafðar að of var ekki hægt að greina um hvort kynið væri að ræða og sagði Tim Blanks hjá Style.com að Gucci kynnti nú til sögunnar hið nýja pönk. Sjón er sögu ríkari en Glamour er hrifið af þessari línu tískuhússins fyrir vor og sumar 2016. Brún tvíhneppt jakkaföt.LitríktFylgstu með Glamour á Facebook og Instagram.
Mest lesið Smæstu húðflúrin í Hollywood Glamour Kraftgallinn er kominn aftur Glamour Íris Björk og Chris Pine saman á rauða dreglinum Glamour Gwyneth Paltrow sýnir okkur að einföld förðun er alltaf best Glamour Adobe tískuvæðir myndir úr myndabönkum Glamour Kim mætti í fjólubláu frá toppi til táar Glamour Britney Spears setur pólitík í Ísrael á hliðina Glamour Bjútíbiblía Glamour er komin út Glamour Rokkuð rómantík hjá Heard Glamour Vertu upp á þitt besta um jólin með Guerlain Glamour