Lífið

Ofurfyrirsæta í brjóstastríði við Instagram

Stefán Árni Pálsson skrifar
Chrissy Teigen lætur ekki stjórna sér.
Chrissy Teigen lætur ekki stjórna sér.
Fyrirsætan Chrissy Teigen virðist vera í stríði við samskiptamiðilinn Instagram en hún hefur nokkrum sinnum sett inn mynd af sér berbrjósta undanfarin sólarhring.

Instagram hefur fjarlægt þær allar en alltaf kemur Teigen til baka með sömu myndina. Myndin samræmist ekki reglum Instagram um nekt og er Teigen greinilega að mótmæla því harðlega.

Teigen, sem er 29 ára , sat nakin fyrir í tímaritinu DuJour á dögunum en hún er eiginkona söngvarans John Legend.

Sjá einnig: Ofurfyrirsætan Chrissy Teigen situr fyrir nakin

Hún starfar sem fyrirsæta og skaust upp á stjörnuhimininn er hún sat fyrir á forsíðu tímaritsins Sport Illustrated árið 2010. Hún á norskan föður og tælenska móður en hefur verið búsett vestanhafs alla sína ævi.

Teigen giftist söngvaranum John Legend árið 2013 og hefur parið vakið athygli fyrir einstaka smekkvísi á rauða dreglinum en þau verja miklum tíma með hvort öðru.


Tengdar fréttir

Frægt fólk á Íslandi árið 2014

Margar þekktar stjörnur sóttu Ísland heim á árinu sem er að líða. Sumar létu lítið fyrir sér fara á meðan að aðrar voru ekki að fela neitt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.