Lífið

Amy Schumer klæddi sig sem Leia-prinsessa

Birgir Olgeirsson skrifar
Amy Schumer á forsíðu GQ.
Amy Schumer á forsíðu GQ. Vísir/GQ
Einn vinsælasti grínisti Bandaríkjanna, Amy Schumer, prýðir forsíðu nýjasta heftis tímaritsins GQ.

Þar skartar hún sama klæðnaði og Leia-pinsessa var neydd til að klæðast þegar hún var fangi Jabba the Hutt í stjörnustríðsmyndinni Return of the Jedi.

Schumer deilir rúmi með vélmennunum úr Star Wars, þeim R2D2 og C3PO.Vísir/GQ
Þetta uppátæki er vísun í val GQ-tímaritsins á Schumer sem fyndnustu konu vetrarbrautarinnar en blaðið kemur ekki út fyrr en á mánudag.

Nýjasta kvikmynd hennar, Trainwreck, verður frumsýnd í Bandaríkjunum á morgun en myndin verður tekin til sýninga hér á landi í næstu viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.