Bíó og sjónvarp

Ný stikla: Óskarsverðlaunafnykur af Joy

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Fyrst bogi og örvar, nú haglabyssa. Jennifer Lawrence er vön að handleika skotvopn.
Fyrst bogi og örvar, nú haglabyssa. Jennifer Lawrence er vön að handleika skotvopn.
Jennifer Lawrence er vígaleg í fyrstu stiklunni fyrir kvikmyndina Joy sem væntanleg er í kvikmyndahús í vetur.

Í kvikmyndinni leiða þau Lawrence, Robert De Niro og Bradley Cooper saman hesta sína á ný eftir stórkostlegan samleik í kvikmyndinni Silver Linings Playbook sem vakti mikla lukku árið 2012

Kvikmyndinni er leikstýrt af David O. Russell sem gerði garðinn frægan með kvikmyndum á borð við I Heart Huckabees, The Fighter, American Hustle og ekki síst hina margverðlaunuðu Silver Linings Playbook og ljóst er að Russell sækir ekki vatnið yfir lækinn í leikaravali sínu.

Í kvikmyndinni Joy fylgjast áhorfendur með sögu fjögurra kynslóða og baráttu einstæðu móðurinnar Joy Mangeno sem vinnur sig upp úr sárri fátækt.

Þó svo að myndin hafi ekki enn verið frumsýnd eru gagnrýnendur vestanhafs sannfærðir um að hún muni sópa að sér verðlaunum á kvikmyndahátíðum næsta árs.

Fyrstu stikluna úr myndinni má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.