Lífið

Þær tvær: Saumurinn sprakk á jógabuxunum

Tinni Sveinsson skrifar
Það er ekkert grín að lenda í óánægðum viðskiptavini sem hellir úr skálum reiði sinnar. Að minnsta kosti ekki í þessu sprenghlægilega atriði.

Þær Vala Kristín Eiríksdóttir og Júlíana Sara Gunnarsdóttir hafa farið á kostum í þættinum Þær tvær á Stöð 2 síðustu sunnudagskvöld.

Í fyrstu seríu eru þættirnir sex talsins. Vala og Júlíana hafa síðan fengið vilyrði fyrir því að framleiða aðra seríu af þáttunum um leið og sú fyrri klárast. Jón Grétar Gissurarson leikstýrir.

Vala og Júlíana léku fyrst saman í leikriti í Verzló en síðan þá hafa þær haldið sambandi og vissu alltaf að þær langaði að vinna meira saman í framtíðinni.

Vala Kristín er útskrifuð úr leiklistardeild Listaháskólans og Júlíana er nýútskrifuð úr leiklistarskóla í London.


Tengdar fréttir

Glænýr skets úr þættinum Þær tvær

Þær Tvær eru nýir íslenskir sketsaþættir sem þær Júlíana Sara Gunnarsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir leika aðalhlutverkin í og skrifa handritið að. Þátturinn fór í loftið á Stöð 2 á sunnudagskvöldið 21. júní.

Þær Tvær: Skets úr fyrsta þættinum

Þær Tvær eru nýir íslenskir sketsaþættir sem þær Júlíana Sara Gunnarsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir leika aðalhlutverkin í og skrifa handritið að. Þátturinn fór í loftið á Stöð 2 á sunnudagskvöldið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.