Lífið

Nafnið á barninu ákveðið

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Kanye, North og Kim.
Kanye, North og Kim. vísir/getty
Þið sem veðjuðuð á að sonur hjónanna Kim Kardashian og Kanye West myndi fá nafnið South hafið tapað peningunum ykkar. Hjónin hafa nefnilega ákveðið að fara í aðra átt.

„Þetta er strákur sem mun fá nafnið Easton,“ segir vinur fjölskyldunnar í samtali við Daily Mail. Easton litli er væntanlegur í heiminn í desember en fyrir eiga hjónin dótturina North sem fæddist 15. júní 2013.

Kim hafði áður gefið út að hún væri ekki mikill aðdáandi nafnsins South. „Af hverju að bæta við annarri höfuðátt? Norður er besta áttin og ég vil ekki vera að fara í aðra átt,“ sagði hún í hlaðvarpi Shaquille O‘Neal. Engu að síður er ekki svo langsótt að segja að Easton sé nánast átt.


Tengdar fréttir

Kanye stíliserar eiginkonuna

Kim Kardashian sat fyrir í myndaþætti fyrir System ásamt eiginmanninum og ljósmyndaranum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.