Lífið

Hljómsveitin Mannakjöt spilar á Gay Pride | Rosaleg búningamátun fest á filmu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Flottir menn sem koma fram á morgun.
Flottir menn sem koma fram á morgun.
Hljómsveitin Mannakjöt mun koma fram á tónleikum við Arnarhól á morgun en tilefnið er Gleðigangan sjálf.

Bandið er skipað þeim Guðna Finnssyni, úr Ensími, Heiðari Kristinssyni, úr Botnleðju, Alþingismanninum Óttari Proppé, úr HAM, Snæbirni Ragnarssyni, úr Skálmöld, Örlygi Smára, Valla Sport og Aroni Baron.

Gleðigangan hefst klukkan 14 og mun sveitin stíga á svið í kjölfarið af henni klukkan 15:30. Einnig mun Agent Fresco, Amabadama, Páll Óskar og Steed Lord koma fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.