Lífið

Pamela Anderson ekki spennt fyrir Baywatch-myndinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Pamela er hér lengst til hægri.
Pamela er hér lengst til hægri.
Pamela Anderson virðist ekki vera paránægð með þá áætlun að ráðast í framleiðslu á nýrri Baywatch mynd.

Zac Efron og Dwayne Johnson, betur þekktur sem The Rock, fara með aðalhlutverkin í nýrri Baywatch mynd sem fer fljótlega í framleiðslu.

Myndin verður frumsýnd árið 2017 og mun Seth Gordon leikstýra henni. Hann hefur meðal annars gert Horrible Bosses og Identity Thief. Þessi 48 ára leikkona fór ávallt með hlutverk CJ Parker í þáttunum og sló fyrst í gegn í þeim.

„Það fílar enginn svona endurgerðir,“ segir Anderson við slúðurmiðilinn TMZ. Pamela segir að tíminn þegar hún lék í þáttunum hafi verið besti tími lífs hennar.

„Hver á leika CJ?. Ég hef ekki tölu á því hversu mörg símtöl ég hef fengið frá umboðsmönnum leikkvenna og það vilja allir leika CJ.“

Sjá einnig:Zac Efron og The Rock í nýrri Baywatch-kvikmynd

Baywatch þættirnir voru gríðarlega vinsælir um allan heim á árunum 1989-2001 en þar var aðalsögupersónan Mitch Buchannon, leikinn af David Hasselhoff. Pamela og Yasmine Bleeth fóru einnig með stór hlutverk í þáttunum.

Árið 2003 kom út kvikmyndin Baywatch: Hawaiian Wedding og voru þá allar gömlu stjörnurnar mættar. Þá er spurning hvort Efron og The Rock geri eins vel og Hasselhoff og félagar.

Ekki er ljóst hvort einhverjir leikarar sem komu að þáttunum til að byrja með eigi eftir að taka þátt í þessu verkefni en líklega mun David Hasselhoff taka þátt í kvikmyndinni og koma eitthvað við sögu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×