Lífið

Zac Efron og The Rock í nýrri Baywatch-kvikmynd

Stefán Árni Pálsson skrifar
Zac Efron og Dwayne Johnson verða flottir í Baywatch.
Zac Efron og Dwayne Johnson verða flottir í Baywatch.
Zac Efron og Dwayne Johnson, betur þekktur sem The Rock, fara með aðalhlutverkin í nýrri Baywatch mynd sem fer fljótlega í framleiðslu.

Myndin verður frumsýnd árið 2017 og mun Seth Gordon leikstýra henni. Hann hefur meðal annars gert Horrible Bosses og Identity Thief.

Baywatch þættirnir voru gríðarlega vinsælir um allan heim á árunum 1989-2001 en þar var aðalsögupersónan Mitch Buchannon, leikinn af David Hasselhoff. Pamela Anderson og Yasmine Bleeth fóru einnig með stór hlutverk í þáttunum.

Árið 2003 kom út kvikmyndin Baywatch: Hawaiian Wedding og voru þá allar gömlu stjörnurnar mættar. Þá er spurning hvort Efron og The Rock geri eins vel og Hasselhoff og félagar.

Ekki er ljóst hvort einhverjir leikarar sem komu að þáttunum til að byrja með eigi eftir að taka þátt í þessu verkefni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×