Lífið

Jennifer Lawrence og Amy Schumer vinna saman að gamanmynd

Birgir Olgeirsson skrifar
Jennifer Lawrence og Amy Schumer.
Jennifer Lawrence og Amy Schumer. Vísir/Getty
Leikkonurnar JenniferLawrence og AmySchumer eru að skrifa handrit að grínmynd saman. NewYork Times greinir frá þessu en þar segir að þær stöllur ætli að leika systur í myndinni. Með þeim að handritagerðinni vinnur systir Amy, Kim, sem hjálpaði til við að skrifa handritið að myndinni Trainwreck sem nýtur gífurlegra vinsælda um þessar mundir.

„Við erum næstum búnar. Þetta bara rann beint á blað. Við erum búnar með um 100 blaðsíður,“ segir Lawrence við NewYorkTimes. „Okkur var ætlað að vinna saman. Við erum með mismunandi smekk og þetta hefur verið það skemmtilegasta sem ég hef gert á ævinni. Við byrjum daginn á að tala saman í gegnum síma, hlæjum og sendum síðan hugmyndir á milli. Og skellihlæjum.“


Tengdar fréttir

Hver er þessi Amy Schumer?

„Þegar ég kom hingað í kvöld var eina markmið mitt að nærbuxurnar mínar litu ekki út eins og ég hefði snýtt mér í þær þegar ég kæmi heim.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.