„Forritun skiptir gífurlega miklu máli, það má færa mjög sterk rök fyrir því að forritun sé læsi 21. aldarinnar. Rannsakendur frá Oxford-háskóla spá því að 45 prósent af störfum verði orðin sjálfvirk á innan við 20 árum,“ segir hann.
Leikurinn gerist á ævintýraeyjunni Box Island þar sem spilarar fylgja aðalsöguhetjunni Hero. „Krakkar þurfa að beita grunngildum forritunar og forrita hvaða leið Hero þarf að fara til að komast áfram,“ segir Vignir.
Box Island verður til að byrja með aðeins aðgengilegur á Íslandi en Vignir segir að með haustinu verði leikurinn gefinn út á erlendri grundu.

Leikurinn kemur út á íslensku sem Vignir segir afar mikilvægt. „Íslenska skiptir máli í svona heilabrjót. Það getur verið aukaflækja að þýða alltaf enskuna fyrir þann sem er kannski ekki alveg kominn með fullt vald á ensku.“
Hann segir kennara hafa sýnt leiknum áhuga og á næstunni sé stefnt að því að skoða hvernig leikurinn geti nýst við kennslu í skólum. Til að byrja með verði horft á almennan markað.
Radiant Games fékk 12,5 milljóna króna árlegan styrk til þriggja ára úr Tækniþróunarsjóði til að vinna að leiknum.