Lífið

Hamilton sendi æsandi undirföt fyrir rúmlega eina milljón til Rihanna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rihanna og Hamilton í desember á síðasta ári. Þá voru þau aðeins vinir.
Rihanna og Hamilton í desember á síðasta ári. Þá voru þau aðeins vinir. vísir/getty
Sögusagnir um samband Lewis Hamilton og Rihanna virðast vera á rökum reistar en þau sáust á stefnumóti í New York í síðustu viku.

Formúlu 1 ökuþórinn gaf sé góðan tíma með söngkonunni áður en hann flaug aftur til Belgíu til að keppa í belgíska kappakstrinum á Spa-brautinni.

Hamilton mun hafa sent undirföt yfir til Rihanna að andvirði 10.000 dollurum eða því sem samsvarar 1,3 milljónum íslenskra króna. Heimildarmaður tímaritsins Heat World segir að undirfötin hafi verið nokkuð æsandi. 


Tengdar fréttir

Lewis Hamilton og Rihanna að hittast

Formúlu 1 ökuþórinn Lewis Hamilton hefur verið að hitta söngkonuna Rihanna undanfarna mánuði en parið hefur haldið því leyndu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×