Hlutabréfamarkaðir í Kína héldu áfram að lækka í morgun, Sjanghæ vísitalan lækkaði um 7,6 prósent í viðskiptum dagsins eftir mesta hrun á hlutabréfamörkuðum þar í landi síðan 2007.
Á sama tíma hækkuðu markaðir í Ástralíu, Hong Kong, Japan og Suður-Kóreu. Miklar lækkanir á mörkuðum í gær höfðu áhrif um allan heim, meðal annars hér heima.
Viðbrögð fjárfesta á mörkuðum utan Kína í morgun gæti þetta merki um að fjárfestar efist um hin raunverulegu áhrif markaðshrunsins í Kína á efnahag annarra landa en batinn gæti líka einungis verið tímabundinn.
Uppfært klukkan 8.00
Sjanghæ vísitalan lækkaði um 7,6 prósent en ekki 7,7 prósent eins og sagði fyrst í fréttinni.
Viðskipti erlent