Lífið

Friðrik Dór á íslenskan tvífara

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eggert og Frikki Dór saman í brúðkaupinu. Þeir voru einnig alveg eins klæddir.
Eggert og Frikki Dór saman í brúðkaupinu. Þeir voru einnig alveg eins klæddir.
Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson á tvífara hér á landi en svo skemmtilega vildi til að þeir sátu saman í brúðkaupsveislu um síðustu helgi.

Tvífarinn er Eggert Ármann Ármannsson, lögfræðingur hjá Valitor.

„Það var bara gaman að því að hitta hann að sjálfsögðu, enda hress náungi. Ég fæ reyndar mjög reglulega ábendingar um að ég eigi hina ýmsu tvífara, sem mér þykja þó mjög mislíkir mér. Ég skil samt hvað fólk meinar þegar það segir að ég og Eggert séum líkir.“

Það verður nóg að gera hjá Friðriki Dór á morgun en hann kemur fram á Óðinstorgi klukkan 16:25 á Bylgjusviðinu í Hljómskálagarðinum klukkan 21:25. Meðfylgjandi mynd var einmitt tekinn af þeim félögum í umræddu brúðkaupi um síðustu helgi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×