Lífið

Frægustu leikarar heims mega teljast heppnir að vera á lífi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sum þeirra mega teljast mjög heppin.
Sum þeirra mega teljast mjög heppin. vísir/getty
Það getur stundum verið hættulegt að leika í kvikmyndum og sumir leikarar sjá alfarið um sín áhættuatriði sjálfir. Það hefur stundum komið upp sú staða að líf leikara hafi raunverulega verið í hættu.

Í morgunþættinum á FM957 var greint frá því hvaða leikarar hafa verið í mikilli hættu við það eitt, að sinna starfi sínu. 

1.     Jennifer Lawrence – Við tökur á kvikmynd í Hunger Game þríleiknum bilaði reykvél. Lawrence var þá stödd inni í miðjum göngum og vélin dældu miklum reyk inn í þau. Þetta endaði með því að hún gat ekki andað og missti meðvitund. Starfsmenn á svæðinu þurftu að beita endurlífgunartilraunum til að koma henni aftur til meðvitundar.

2.     Johnny Depp – Datt af hesti við tökur á kvikmyndinni The Lone Ranger sem varð til þess að fresta þurfti tökum í nokkra mánuði vegna meiðsla hans.

3.     George Clooney – Slasaðist alvarlega á baki og er enn að vinnu úr þeim meiðslum. Atvikið átti sér stað við tökur á áhættuatriði sem fór úrskeiðis í kvikmyndinni Syriana. Clooney þurfti að undirgangast aðgerð á mænu eftir slysið.

4.     Meryl Streep – Við tökur á myndinni The River Wild lenti Streep í miklu sogi út í miðri á og Kevin Bacon varð að hafa hraðar hendur og bjargaði leikkonunni upp úr ánni.

5.     Gerard Butler – Drukknaði nærum því við tökur á kvikmyndinni Chasing Mavericks. Butler lenti í vandræðum út í sjó og þurfti að bjarga honum uppúr. Beita þurfti endurlífgunartilraunum til að koma honum til meðvitundar.

6.     Joseph Gordon-Levitt – Lenti í árekstri við leigubíl í New York og sauma þurftu yfir þrjátíu spor á hendi. Levitt var þá við tökur á myndinni Premium Rush.

7.     Jason Statham – Við tökur á kvikmyndinni Expendables 3 var hann að keyra stóran flutningabíl þegar bremsubúnaðir í ökutækinu bilaði og trukkurinn stefndi beint út í sjó. Statham náði að stökkva út úr trukknum rétt áður en hann hafnaði í sjónum. Það hefur líklega bjargað lífi hans.

8.     Charlize Theron – Í miðju áhættuatriði við tökur á kvikmyndinni Æon Flux datt Theron illa og lenti á hálsinum. Læknar tilkynntu henni að hún hefði getað lamast við fallið ef hún hefði lent aðeins öðruvísi. Tökur á myndinni frestuðust um nokkra mánuði vegna atviksins.

9.     Sylvester Stallone – Við tökur á myndinni Rocky 4 bað hann Dolph Lundgren vinsamlegast um að hætta öllum „gervihöggum“ og kýla hann í alvörunni. Þetta endaði með því að Stallone var á gjörgæslu í átta daga og haldið sofandi.

10. Martin Sheen – Fékk hjartaáfall við tökur á myndinni Apocalypse Now.

11. Leonardo Dicaprio -  Við tökur Django Unchained kýldi hann svo fast í borð við tökur á lokaatriðinu í myndinni að hann rústaði á sér hendinni. Svo óheppilega vildi til að taka þurfti atriði aftur og þá varð Dicaprio að nota hina hendina.

12. Sally Field – Hefur lifað af þrjú flugslys. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×