Lífið

Latabæjarhátíðin í beinni útsendingu á Vísi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Tveir eldfljótir krakkar í Latabæjarhlaupi um árið.
Tveir eldfljótir krakkar í Latabæjarhlaupi um árið.
Reikna má með þúsundum barna í Hljómskálagarðinn á morgun að loknu Latabæjarhlaupinu. Sýnt verður beint frá skemmtuninni fyrir börnin á Vísi þar sem góðkunningjar barnanna úr Latabæ verða í banastuði. Börn í öðrum landshlutum eða þau sem eiga ekki heimangengt ættu því að geta fylgst með því sem fram fer heima í stofu.

Latabæjarhlaupið hefst með upphitun við rásmark klukkan 13:15. Eldri hópurinn, sex til átta ára, hlaupa 1,3 kílómetra í kringum Tjörnina og verður ræst klukkan 13:20. Upphitun fyrir yngri börnin, fimm ára og yngri, hefst 13:30 og ræsing fimm mínútum síðar. Hlaupa þau 550 metra leið.

Hlaupinu lýkur í Hljómskálagarðinum þar sem við tekur skemmtidagskrá klukkan 14. Sýnt verður beint frá henni á sjónvarpsstöðinni Bravó og Vísi. Reiknað er með því að útsendingin standi yfir í tæpa klukkustund.

Skipulagning Latabæjarhlaupsins.
Alda Dís og Páll Óskar taka lagið

Bylgjan lofar svo flottasta garðpartýi ársins fyrir alla fjölskylduna í Hljómskálagarðinum klukkan 16. Fjölmargir íslenskir listamenn koma fram auk þess sem boðið verður upp á grillmat og gosdrykki klukkan 17 í boði Ali og Coke á meðan birgðir endast.

Klukkan 16:30 verður boðið upp í dans kl. 16 30 þegar Jói, Thea og Hrafnhildur frá Dans & Jóga í Valsheimilinu stíga á svið og stjórna Zumba. Þannig verður hægt að hreyfa sig á grasinu áður en farið er í grillveisluna

Klukkan 18:30 hefjast stórtónleikar Bylgjunnar og þar koma fram m.a. Mannakjöt, sem spiluðu í fyrsta skipti á Hinsegin dögum og Júníus Meyvant sem einnig treður upp á tónleikum X-ins við Bar 11 klukkan 17.

Söngkonan María Ólafsdóttir kann vel við sig í bleika búningnum sem einkennir Sollu stirðu.vísir/pjetur
Milljónamæringarnir ásamt Bjarna Ara og Bogomil Font snúa aftur eftir nokkra fjarveru en framundan eru stórtónleikar hjá sveitinni 12. september. Dikta, Stop Wait Go ásamt Öldu Dís, Friðrik Dór, Glowie og Maríu Ólafs. María Ólafs verður því bæði í hlutverki Sollu Stirðu á Latabæjarhátíðinni og svo komin í eigin föt á stórtónleikum Bylgjunnar.

Tónleikarnir verða að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Bylgjunni, bæði í útvarpinu og hér á Vísi.

Tónleikunum lýkur í tæka tíð fyrir gesti að rölta að Tjörninni til að fá gott útsýni að flugeldasýningunni sem hefst kl. 23.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×