Lífið

Norðurljósin norðan heiða í efsta sæti á lista TripAdvisor

Stefán Árni Pálsson skrifar
Norðurljósin geta verið ótrúlega magnþrungin.
Norðurljósin geta verið ótrúlega magnþrungin. vísir/ottó bjarnason
Á einum vinsælasta ferðavef heims, TripAdvisor, er farið í gegnum tíu bestu draumaferðirnar í heiminum í dag. Það þykir greinilega draumi líkast að sjá norðurljós hér á Íslandi en norðurljósadýrðin norðan heiða á Akureyri situr í efsta sætinu.

Þetta er niðurstaðan eftir kosningu frá notendum síðunnar.

„Við vorum þarna í um eina klukkustund og horfðum á norðurljósin dansa upp á himnum og fengum frábær tækifæri til að taka góðar myndir,“ segir einn notandi síðunnar. 

Í öðru sæti er t.d. að sofa í strákofa út á miðju hafi við eyjuna Bora Bora. Í þriðja sæti er síðan að horfa á sólsetrið á grísku eyjunni Santorini.

Hér má sjá listann í heild sinni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×