Lífið

Nýtt myndband frá Trúboðunum: „Afhjúpar fávisku og þekkingarskort mölbúans á sveitalífi“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Myndbandið er stórskemmtilegt og það sama má segja um lagið.
Myndbandið er stórskemmtilegt og það sama má segja um lagið.
Fyrsta myndband Trúboðanna kemur út í dag og er það við lagið Upp í sveit af plötunni Óskalög sjúklinga.

„Lagið er óður til sveitarinnar og þrá hljómsveitarmeðlima um að geta átt athvarf fjarri svifryks Miklubrautar og hávaða. Jafnframt afhjúpar það fávisku og þekkingarskort mölbúans á sveitalífi og ekki síst þeim störfum sem unnin eru til sveita. Með klaufsku handbragði er gerð tilraun til þess að moka skít, gefa geitum, girða, mjólka kýr og ræsa dráttarvél,“ segir Heiðar Ingi Svansson, bassaleikari í hljómsveitinni.

En þegar hvorki gengur né rekur með bústörfin er alltaf hægt að grípa í hljóðfærin með grasbala sem svið, sólarljós sem lýsingu og kletta sem sviðsmynd.

Myndbandið var tekið upp á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði á sólríkum sumardegi fyrr í sumar og nutu hljómsveitarmeðlimir gestrisni ábúenda þar og ekki síst dýra. Um myndatöku, leikstjórn og klippingu sá sjónvarpsmaðurinn góðkunni Gísli Einarsson sem gerði handritið ásamt Karli Övarssyni. Framleiðandi er Finngálkn Movies. Engin dýr voru meidd vegna gerð þessa myndbands.

Trúboðarnir eru Karl Örvarsson, söngvari, Heiðar Ingi Svansson, bassaleikari, Guðmundur Jónsson, gítarleikari og Magnús Rúnar Magnússon, trommuleikari. Þeir munu koma fram ásamt fjölmörgu öðru tónlistarfólk á Menningarnæturtónleikum X977 á Bar 11 n.k. laugardag kl 14:30 og verða svo með útgáfutónleika 28. ágúst n.k. á Græna hattinum á Akureyri.


Tengdar fréttir

Rokka í stað þess að golfa

Hljómsveitin Trúboðarnir samanstendur af fjórum feðrum sem eiga samtals fjórtán börn. Sveitin leikur poppskotið síðpönk. Markmið sveitarinnar er að berjast gegn stöðnun í lífi meðlima.

Nokkuð þéttur á nöglinni

Heiðar Ingi Svansson leikur á bassa í hljómsveitinni Trúboðarnir. Fyrsta plata hljómsveitarinnar er nýkomin út og útgáfutónleikar fram undan á Gauknum á fimmtudaginn. Fólk spurði Heiðar út í helgarplönin og hljómsveitina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×