Lífið

Lögreglan á Suðurnesjum auglýsir eftir eigendum gleraugna og hvolps

Atli Ísleifsson skrifar
Kannast einhver við hvolpinn eða gleraugun?
Kannast einhver við hvolpinn eða gleraugun? Mynd/Lögreglan á Suðurnesjum
Lögreglan á Suðurnesjum auglýsir eftir eigendum gleraugna og hunds á Facebook-síðu sinni í kvöld.

Stúlknagleraugun fundust við 88 húsið fyrr í kvöld og segir að eigandi geti vitjað þeirra á lögreglustöðinni.

Hvolpur sem lögreglukonur embættisins halda á á myndinni kom hingað á lögreglustöðina og segir að hann gráti mikið. Hann sé þó í góðum höndum, eins og sjá má.

Þessi stúlknagleraugu fundust við 88 húsið nú rétt í þessu. Eigandi getur vitjað þeirra hjá okkur.

Posted by Lögreglustjórinn á Suðurnesjum on Thursday, 20 August 2015

Þessi litli hvolpur kom hingað til okkar og grætur mikið þó hann sé í góðum höndum, eins og sjá má. Eigum við ekki að finna eigandann saman.

Posted by Lögreglustjórinn á Suðurnesjum on Thursday, 20 August 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×