Lífið

Breyta styttu af Nicki Minaj útaf dónum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Svona lítur Nicki Minaj út á vaxmyndasafninu í Las Vegas.
Svona lítur Nicki Minaj út á vaxmyndasafninu í Las Vegas.
Forráðamenn Madame Tussauds vaxmyndasafnsins í Las Vegas ætla sér að breyta uppstillingunni á tónlistarkonunni Nicki Minaj eftir að gestir safnsins hafa ítrekað orðið uppvísir af því að stilla sér upp heldur ósmekklega við gripinn.

Minaj var sett upp á sínum tíma og þá í svipaðri stellingu og hún sést í myndbandinu við lagið Anaconda.

Hún er ein af allra vinsælustu verkunum á safninu og hafa verið dreifðar ótal myndir af gestum safnsins með Minaj, en myndirnar teljast ekki smekklegar og vísa oft í ákveðnar kynlífsstellingar.

Í yfirlýsingu frá safninu er beðist afsökunar á þessu og von er á breytingum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×