Óðinn Ríkharðsson, leikmaður Fram og Ómar Guðjónsson, leikmaður Vals, voru í 2. og 3. sæti yfir markahæstu leikmenn mótsins á heimsmeistaramótinu í handbolta skipað leikmönnum undir 19 ára aldri. Óðinn var markahæsti leikmaður mótsins úr opnum leik.
Óðinn var lengst af markahæsti leikmaður mótsins en slóvenski leikmaðurinn Blaz Janc skaust fram úr honum í leik Slóveníu og Íslands í gær. Munaði fjórum mörkum á þeim fyrir leiki dagsins.
Báðir bættu þeir við fjórum mörkum en hinn slóvenski Janc skoraði alls 69 mörk á mótinu, fjórum mörkum meira en Óðinn. Óðinn varð hinsvegar markahæstur úr opnum leik en þrjú mörk Óðins komu af vítalínunni á mðena þrettán mörk Janc komu af línunni.
Í þriðja sæti kom Ómar Magnússon með 55 mörk en hann setti átta mörk í öruggum sigri Íslands á Spánverjum í dag. Nýtti hann 26 af 28 vítum sínum á mótinu, alls 93% vítanýtingu.
Þá átti Ísland þá tvo einstaklinga sem voru með flest hraðaupphlaupsmörk í mótinu en Hákon Styrmisson skoraði 18 af 36 mörkum sínum á mótinu úr hraðaupphlaupi.
Óðinn og Ómar meðal markahæstu mannana í Rússlandi

Tengdar fréttir

Frakkar tóku gullverðlaunin í Rússlandi
Franska liðið átti í engum vandræðum með Slóvena í úrslitaleik HM í handbolta skipuðum leikmönnum undir 19 ára aldri.

Óðinn valinn í úrvalslið HM
Óðinn Þór Ríkharðsson, hægri hornamaður 19 ára landsliðsins, var í dag valinn í úrvalslið heimsmeistaramótsins í Rússlandi.

Umfjöllun: Ísland 26-22 Spánn | Strákarnir nældu í bronsið í Rússlandi
Ísland vann öruggan sigur á Spánverjum í leiknum upp á bronsið á heimsmeistaramóti u19 í handbolta í dag. Sigurinn var afar sannfærandi en íslenska liðið leiddi frá fyrstu mínútu.

Sigursteinn: Leystu verkefnið eins og sannir sigurvegarar
Aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins í handbolta var afar stoltur af strákunum sínum eftir öruggan sigur á Spánverjum í bronsleiknum á HM U19 árs í handbolta í dag.