Lífið

Björn slappaði af í heitum potti - Myndband

Samúel Karl Ólason skrifar
Svartbjörninn tók því rólega í sundlauginni.
Svartbjörninn tók því rólega í sundlauginni.
Denise og Tony Diering vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar svartbjörn hafði gert sig heimkominn í sundlaug þeirra hjóna á mánudaginn. Björninn svamlaði um nokkurt skeið í sundlaug þeirra hjóna áður en hann skellti sér í heita pottinn.

Samkvæmt því sem þau hjón segja við fjölmiðla ytra var björninn á sundi í um 15 mínútur. Þau tóku sundferðina að hluta til á myndband.

Hjónin búa í Vancouver í Kanada og segja þetta ekki í fyrsta sinn sem þau fá heimsókn frá birni. Í síðasta mánuði kom björn sem Tony grunar að sé sá sami og skellti sér í sund. Þá borðaði hann fuglafóður sem hjónin höfðu komið fyrir í garðinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×