Lífið

Hátíð í harðri samkeppni við Menningarnótt

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Hér verður stuð á laugardagskvöldið, lofar Linda.
Hér verður stuð á laugardagskvöldið, lofar Linda. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Það verður vonandi rokna stuð hér um helgina,“ upplýsir Linda Guðmundsdóttir, verslunarstjóri í kaupfélaginu í Norðurfirði á Ströndum, sem stendur fyrir bryggjuballi við smábátahöfnina og veitir þar með Menningarnótt í Reykjavík harða samkeppni.

Hún segir tímasetninguna góða fyrir heimafólkið, eftir heyskap og strandveiði, nú sé örlítil pása þar til smalamennskur byrji og aðrar haustannir.

„Ballið er fyrst og fremst hugsað fyrir fólk hér í kring en auðvitað fögnum við öllum sem vilja skemmta sér fallega með okkur,“ segir hún.

Tónar harmóníkunnar munu hljóma í Árneshreppnum, því sjálf spilar Linda á það göfuga hljóðfæri og fær til sín spilara bæði úr Eyjafirði og að sunnan, þeirra á meðal  Friðjón Jóhannsson sem margir landsmenn kannast við.

„Auð­vitað verður hér alvöru hljómsveit með gítar, trommu og bassa líka,“ tekur Linda fram og segir verða dansað úti.

„Þetta er bryggjuball, það er auðvelt að dansa á smábátabryggjunni en hljómsveitin verður í gámi svo hún fái skjól. Við ætlum að skreyta hér með seríum og kertum og gera þetta svolítið kósí.“

Hún kveðst vona að bryggjuballið verði árvisst á haustin næstu ár.

„En þetta er fyrsta tilraun,“ segir hún. „Hugdetta sem ég fékk og ákvað að hrinda í framkvæmd. Nú, ef veðrið verður ofboðslega leiðinlegt þá er hér gamalt fiskverkunarhús við bryggjuna sem hægt er að opna stórar dyr á og dansa inni í. Það er plan B.“

Ballið byrjar klukkan tíu að sögn Lindu og hún býst við að það standi til tvö.

„Það er bara gamla góða sniðið á þessu,“ segir hún. „Svo kostar 2.000 kall inn á svæðið og það er posi á staðnum. Þetta verður örugglega gaman. Strandamenn hafa alltaf kunnað að skemmta sér.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×