Lífið

Karla- og kvennatíska síðustu hundrað ára á fimm mínútum

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Sumt er smekklegt, annað ekki. Eins og gengur.
Sumt er smekklegt, annað ekki. Eins og gengur. Vísir
Vefsíðan Mode.com tók saman hundrað ár af tísku, bæði karla og kvenna, í tveimur tveggja mínútna myndböndum sem sjá má hér að neðan.

Fyrirsæturnar eru klæddar í hverja múnderinguna á fætur annarri og það er áhugavert að sjá breytinguna á milli áratuga. Hattar hafa ekki átt upp á pallborðið hjá karlmönnum síðustu áratugi en þeir voru vinsælir á fyrstu áratugum síðustu aldar eins og sjá má. Þá er áhugavert að sjá í myndbandinu þegar konur byrja skyndilega að klæðast buxum en það tíðkaðist lengi vel ekki á síðustu öld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×