Lífið

Jon Hamm og Jennifer Westfeldt að skilja

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jon Hamm og Jennifer Westfeldt skilin.
Jon Hamm og Jennifer Westfeldt skilin. vísir/getty
Jon Hamm og Jennifer Westfeldt eru að skilja eftir 18 ára samband. Þetta kemur fram í fjölmiðlum vestanhafs.

Bæði höfði þau þverneitað fyrir það að sambandið stæði á brauðfótum í apríl síðastliðnum.

Hamm og Westfeldt gáfu frá sér yfirlýsingu í gær en þar kom fram að parið væri að skilja.

Jon Hamm hefur farið með aðalhlutverkið í þáttunum Mad Men og Westfeldt hefur bæði verið í hlutverki framleiðanda á sjónvarpsþáttum og komið við sögu í 24 og Greys Anatomy. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×