Lífið

Tileinka laginu ástvinum þeirra sem hafa látist í leit að betra lífi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hljómsveitin Vaginaboys vonast til að það dragi úr neikvæðri merkingu orðisins vaginaboy með nafni hljómsveitarinnar.
Hljómsveitin Vaginaboys vonast til að það dragi úr neikvæðri merkingu orðisins vaginaboy með nafni hljómsveitarinnar. vísir/Stefán
Hljómsveitin Vaginaboys hefur gefið frá sér nýtt lag í tilefni tónleika sem sveitin spilar á laugardagskvöld.

Lagið er tileinkað ástvinum þeirra sem hafa látist í leit að betra lífi. UNICEF á Íslandi stendur fyrir tónleikunum til stuðnings börnum á flótta.

Tónleikarnir verða haldnir á Kex Hostel laugardaginn 19. september næstkomandi og byrja klukkan 15:30.

Dagskráin er ekki af verri endanum, en fram koma:

dj. flugvél og geimskip

Sin Fang

Júníus Meyvant

Vaginaboys

MAMMÚT

Agent Fresco

FM Belfast






Fleiri fréttir

Sjá meira


×