Björn Bjarnason leiðir hugleiðslutíma Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 18. september 2015 07:00 Björn Bjarnason mun leiða hugleiðslu tvisvar í viku en hann segir hana nýtast öllum alltaf og alls staðar. Vísir/GVA „
Ég er búinn að stunda Qi gong í yfir tuttugu ár. Þannig að ég er ekki alveg nýr í þessu. Ég hef einnig flutt fyrirlestra um hugleiðslu og fylgst náið með umræðum um hugleiðslu núna þegar hún er að ryðja sér til rúms á æ fleiri sviðum,“ segir fyrrverandi dóms- og kirkjumálaráðherra, Björn Bjarnason. Flestir kannast við Björn af stjórnmálavettvangi en nú í október mun hann byrja að leiða morgunhugleiðslu sem byggð er á grunni Qi gong tvisvar í viku í hálftíma í senn í hreyfingarstöðinni Tveir heimar. Hann hefur líkt og áður sagði stundað Qi gong í lengri tíma og er meðal annars formaður Aflsins, félags Qi gong iðkenda. Fjölmargar aðferðir eru til við iðkun hugleiðslu en þær eiga það allar sameiginlegt að skapa hugarró til þess að njóta betur alls þess sem gert er og gerist. Segja skilið við fortíðina sem verður ekki breytt og að átta sig á því að framtíðin er óráðin og henni ekki hægt að stjórna. „Hugleiðsla er til þess fallin, líkt og íslenska orðið gefur til kynna að hvíla hugann og átta sig á því hvar maður er á þeirri stundu sem maður er að hugleiða,“ segir Björn og bætir við: „Það á ekki að vaxa neinum í augum, því það er það einfaldasta sem menn geta gert að draga inn andann og hugsa um andardráttinn. Mjög einfalt, alls ekki flókið og öllum til góðs.“ Björn segir forsendur þess að stunda hugleiðslu fyrst og fremst snúast um að gefa sér tíma til þess. „Það vefst fyrst og fremst fyrir fólki að gera það. Ef maður gefur sér ekki tuttugu mínútur eða hálftíma áttar maður sig kannski ekki á því hvað það gefur manni mikið að gefa sér smá tíma fyrir sjálfan sig,“ segir hann og bendir reinnig á að í snjallsímum megi nálgast fjölmörg hugleiðsluöpp sem hægt sé að nota ef áhugi er fyrir því að kynna sér heim hugleiðslunnar nánar. Mörg hver eru jafnvel ókeypis. Margir hugsa sjálfsagt með sér að til þess að hugleiða þurfi algjöra kyrrð og ró í kringum sig en að sögn Björns er hægt að hugleiða hvar og hvenær sem er. „Það er náttúrulega aðallega það að skapa sér innri ró, það getur þú gert hvar sem er. Það er mjög öflugt að hugleiða í hóp, það gefur hugleiðslunni sérstakt gildi.“ Þegar hann er spurður að því hvort hugleiðslan og Qi gong hafi nýst honum við fyrri störf er svarið stutt og laggott: „Hún nýtist alls staðar og alltaf.“
Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Lífið Með húsaflutninga á heilanum Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Eminem verður afi Foreldrar minnka við sig svo börnin geti keypt fyrstu eign „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Sjá meira