Lífið

4,4 milljónir horfðu á Ara: „Ég virtist hafa kveikt elda um allan heim“

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Ari söng sig inn í hjörtu Íslendinga og heimsins í gær. Eða hvað?
Ari söng sig inn í hjörtu Íslendinga og heimsins í gær. Eða hvað? Mynd/Aðsend
„Ég bjóst ekki við þessu þegar ég gerði þetta. Þetta sprakk bara upp strax,“ segir Ari Steinn Skarphéðinsson en hann fékk sínar tíu sekúndur af frægð í gær þegar snap-myndbandið sem hann sendi í sameiginlega Snapchat sögu Íslendinga var valið sem opnunaratriði sögunnar. „Þetta var eitthvað raul hjá mér, örvæntingarfull tilraun til að komast á Íslands-snappið.“

Ari Steinn söng lítið frumsamið lag til þess að bjóða Snapchat-áhorfendum um allan heim góðan dag. „Good morning Snapchat. How you doing today? This is Iceland calling and the weather is ridiculus,“ söng Ari og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Söngur Ara útleggst á íslensku: „Góðan daginn Snapchat. Hvernig hafið þið það í dag? Það er Ísland sem kallar og veðrið hér er út úr kortinu.“ Myndbandið má sjá hér að neðan.









„Ég virtist hafa kveikt elda um allan heim,“ segi Ari og hlær. „Ég vissi ekkert hvernig ég ætti að slökkva þá.“ Sá sem sendur inn myndbönd á Snapchat getur séð hversu margir hafa horft og segir Ari að sér hafi brugðið dálítið í morgun þegar hann sá að 4,4 milljónir manna höfðu séð myndbandið. „Og svo voru einhver 3400 skjáskot.“

Hann er virkur á Twitter og tók eftir því að fjölmargir höfðu skoðun á söng hans, bæði hérlendis og erlendis. Vinir hans voru líka duglegir að senda honum skilaboð og benda á ummæli um allan heim. „Ég hugsaði með mér að þetta væri fyndið að gera þetta. Ég ætlaði mér ekki að fara fyrir brjóstið á fólki,“ segir Ari sem tók engin ummælanna neitt nærri sér. Hann var kallaður „skömm Íslands“ af einum og þá stakk annar upp á því að hann yrði sviptur ríkisborgararétt.

Hér má sjá skjáskot af Snapchat þar sem sést hversu margir horfðu á sönginn.Mynd/Ari


„Ég var í vinnunni í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og við ræddum það á kaffistofunni um morguninn hvað það væri gaman að komast á snap Íslands. Ég sendi þetta eitthvað um níu en svo var klukkan orðin tólf og ekkert komið þannig að ég bjóst ekkert við að þetta færi inn. En svo kíkti ég á símann einhvern tímann eftir hádegi og þá biðu mín fjölmörg skilaboð frá vinum og skilaboð á Twitter. Ég sá þá svolítið eftir þessu strax,“ viðurkennir Ari. „Ég skil alveg fólkið sem varð fyrir kjánahrolli. En svo er bara ekki annað hægt en að hafa gaman að þessu.“

Hann segist ekki vanur því að syngja. „Nei, alls ekki, ég hef held ég snert míkrófón þrisvar sinnum yfir ævina.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×